top of page

Íslenski veturinn

3 minutes ago
2 min read

Við erum klárlega að sigla inn í mestu mótlætismánuðu ársins þegar kemur að því að stunda hlaupaþjálfun. Fátt sem er að ýta okkur út um dyrnar en samt svo mikilvægt að byrja ekki að missa of mikið út. Þetta er tíminn til að æfa og auka þrautsegjuna okkar.



Þrautseigja

Það hafa verið gerðar rannsóknir á þrautseigju í fólki en þrautseigja er í rauninni bara geta fólks til að mæta mótlæti og halda áfram. Í þessum rannsóknum kom í ljós að það er mjög erfitt að þjálfa hina eiginlegu þrautseigju en með því að láta fólk gera viðbragðsáætlun varðandi hvað það ætlaði að gera þegar það yrði fyrir mótlæti, þá jókst þrautseigja þess gífurlega. Þetta getum við nýtt okkur í hlaupunum, bæði á æfingum og í keppnum og þegar við lendum í alvarlegra mótlæti eins og meiðslum. Til dæmis getum við hugsað okkur að við séum að keppa í hlaupi þar sem er ein stór brekka. Í staðinn fyrir að hugsa um hversu erfið hún sé, þá getum við sagt okkur að þegar við komum að henni, þá ætlum við að hugsa um að hreyfa handleggina ennþá hraðar – hraðari hendur þýða hraðari fætur og þá klárum við brekkuna fyrr. Þá er það eina sem við hugsum um á meðan við tökumst á við brekkuna: hreyfa hendur, hreyfa hendur, hreyfa hendur. Með því að vera meðvituð um að mótlætið muni koma og vita hvernig við ætlum að bregðast við, eigum við auðveldara með að komast yfir þetta tímabundna ástand. Einnig getum við ímyndað okkur að það sé heitur sumardagur, já, á Íslandi, og við séum að hlaupa 10 x 400 m endurtekningar á hlaupabrautinni og vitum að okkur á eftir að verða virkilega heitt í seinni hlutanum á æfingunni sem er ákveðið mótlæti.


Þá getum við t.d. tekið vatn með okkur á æfinguna og þegar við finnum hitann byrja að koma, þá getum við sprautað yfir okkur vatni í hvíldinni á milli endurtekninga og þannig unnið á mótlætinu. Þetta hljómar eins og eitthvað einfalt sem ætti ekki endilega að skipta sköpum en bara það að undirbúa sig fyrir mótlætið getur hjálpað okkur andlega og líkamlega að takast á við það. Það er að sjálfsögðu til fjöldi ólíkra aðferða en mikilvægast er að vera tilbúin með ákveðna viðbragðsáætlun sem auðvelt er að fylgja þegar mótlætið lætur á sér kræla. Eins getum við tekið meiðsli sem dæmi. Í staðinn fyrir að sökkva í volæði getum við litið á meiðslin sem tækifæri til þess að vinna í einhverjum ákveðnum veikleikum sem við höfum eða nota tímann til að gera meira af hlutunum sem við getum ekki gert þegar við erum á miðju keppnistímabili. Þetta geta verið hlutir eins og að setja námið eða vinnuna í forgang eða heimsækja afa og ömmu oftar. Við ættum aldrei að líta á meiðsli sem eitthvað sem kemur í staðinn fyrir hvíldartímabilið. Þannig hugsunarháttur mun alltaf leiða af sér frekari meiðsli, spurningin er bara hvenær þau gera vart við sig. Hlaupaþjálfun á aldrei að miðast við að æfa meiðslanna á milli og slíkur hugsunarháttur ætti aldrei að líðast hjá íþróttamanni sem vill ná langt. Meiðsli eru hluti af íþróttaiðkun en þau eru ekki óhjákvæmileg.

 
 
 

Comments


bottom of page