Hvað gerðist á HM í 100km?

Síðasti sunnudagur var líklega versti dagurinn á mínum íþróttamannaferli. Það er ekki bara út af því hvernig hlaupið fór heldur líka hvernig aðdragandinn að keppnisdeginum var.

Að stefna á Heimsmeistaramót
Í fyrra hljóp ég mitt fyrsta 100 km hlaup. Það var að stórum hluta til komið vegna þess að ég átti von á mínu öðru barni í mars og vildi ekki vera með markmið sem væru erlendis fyrr en mögulega síðar á árinu. Mér fannst þetta líka áhugaverð áskorun og myndi ýta undir að auka magnið sem var markmiðið fyrir árið. Gulrótin var svo að slá Íslandsmet og að gera það á Íslandi er auðvitað miklu skemmtilegra. Í stuttu máli gekk hlaupið frekar vel og ég fann að mig langaði klárlega að prófa að taka annað svona hlaup enda lærirðu mikið í undirbúningnum. Fyrst var samt Valencia maraþonið á dagskrá en það gekk svo glimrandi vel þar sem ég fór á 2:19:32 í nokkuð heitum aðstæðum. Eftir það hlaup var ég mjög spenntur að finna mér hratt og gott 100 km hlaup og endaði á að velja Koper í Slóveníu. 965 m hringur og alveg flatur. Vissulega gekk það hlaup mjög vel og ég hljóp þar á 6:24 sem er næst stigahæsta afrek Íslendings í götuhlaupi frá upphafi. Aftur var ég frekar óheppinn með aðstæður en það var heiðskírt, heitt og svo mikill vindur (meira að segja á íslenskan mælikvarða). Ég var gríðarlega sáttur með þennan árangur og ætlaði að leggja 100 km rútunni í smá tíma eftir þetta. Var kominn inn í elítu start í Frankfurt í okt og ætlaði þar að stefna á að fara milli 2:17-2:18 í maraþoni.

Svo var laumað að mér hugmyndinni um að taka þátt í HM í 100 km sem færi fram 20. sept. Í fyrstu hafði ég engan áhuga á því en eftir því sem ég hugsaði þetta betur og fór yfir möguleikana með fjölskyldunni þá sá ég að þetta væri eiginlega eitthvað sem ég yrði að gera. Það væru tvö ár í næsta HM og alls kostar óvíst hvað ég verð að gera þá. Fyrsta sem ég gerði var að skoða veðurspána á þessari dagsetningu á Ames svæðinu sem var að halda mótið. Hún leit í rauninni bara mjög vel út og líkur á að það væri á bilinu 9-22 gráður yfir hlaupið, oft skýjað og stundum smá væta meira að segja. Þar með var það ákveðið.
Að verða heimsmeistari
Þegar maður er kominn með tvö börn og bara annað komið inn á leikskóla þá er ómögulegt að stefna á svona stórt markmið án þess að hafa alla með um borð. Fyrsta samtalið var við Söru og þar ákváðum við að þetta væri þess virði að leggja extra mikið á okkur. Svo var allt baklandið með í ráðum og erum við bæði ótrúlega heppin með foreldra og systkini.
Þegar ég ákvað að fara í hlaupið átti ég þriðja besta tíma í heiminum það árið og á rásdeginum var tíminn minn sá tíundi besti í heiminum. Í Koper fannst mér eins og ég hefði getað hlaupið 5-6 mínútum hraðar ef ég hefði ekki verið að berjast við sólina og vindinn og því voru góðar líkur á að ég gæti verið að stefna á topp 10 á HM. Þegar ég skoðaði svo úrslit frá því 2024 þar sem var hlaupið reyndar í miklum hita að þá voru fyrstu þrír á 6:12, 6:25 og 6:37.

Þegar nokkrir mánuðir af tímabilinu voru liðnir fann ég að formið var á rosalega góðum stað, í rauninni allar æfingar að ganga upp og oft sem ég var að tikka yfir 200 km á viku. Ég var líka mjög snemma byrjaður í hitaþjálfun en ég tók bara passífa hitaþjálfun (var semsagt ekki að klæða mig í mikið af fötum og hreyfa mig í hita). Í fullkomnum aðstæðum var ég að sjá að það væri raunhæft að vera í kringum 3:40-3:45 pace sem gæti skilað mér undir 6:10 í 100 km. Á góðum degi gæti það skilað fyrsta sæti á heimsmeistaramóti, þannig ég setti mig í það hugarástand að ég væri að stefna á að verða heimsmeistari.
Smá hliðarspjall
Sem þolíþróttamaður ertu alltaf í einhverri hugarleikfimi. Ein svoleiðis æfing er að stækka tilganginn við það sem þú ert að gera til að þess að gera erfiðu hlutina auðveldari. Auðvitað finnst mér ekki gaman að taka hitaþjálfun, passa alltaf upp á svefninn og hafa næringuna upp á tíu, en hvað myndi heimsmeistarinn gera? Er líklegt að sá sem verður heimsmeistari sé ekki að hugsa um alla litlu hlutina?
Til þess að geta nýtt sér svona hugarleikfimi er ekki nóg að setja sig í þetta hugarástand heldur þarftu líka að geta verið meðvitaður um að þú sért að gera það, án þess að finnast allt annað en fyrsta sæti vera vonbrigði. Við viljum fá það besta úr báðum heimum.
Undirbúningurinn
Það er rosalega margt sem getur farið úrskeiðis í undirbúningi fyrir hlaup og það er algjör undantekning þegar allt gengur upp.

Tímabilið fór reyndar smá brösulega af stað. Ég reyndi að koma mér of hratt í form eftir Koper 100 km og fékk strax í hásinina rétt fyrir Víðvangshlaup ÍR og gat ekki beitt mér almennilega þar. Í kjölfarið þurfti ég að hætta við að mæta í Vecct Míluna en langaði að prófa aftur í Puffin Run nokkrum dögum síðar eftir að hafa hvílt höggin. Það gekk sem betur fer vel og restina af tímabilinu fann ég ekkert fyrir hásin eða öðrum eymslum. Í rauninni gekk svo til allt fullkomlega upp eftir það. Ég varð þrisvar sinnum Íslandsmeistari og ákvað svo að taka Laugaveginn sem hraða æfingu og kláraði þar á 3:52:14. fjórum dögum seinna fór ég 35km túr og svo þremur dögum eftir það var það maraþon á 2:33 og púlsinn aldrei verið jafn góður. Núna var aðalmálið að halda rétt á spilunum og mæta með ferskar lappir á HM.

Ég ákvað að fara í æfingabúðir til St. Moritz síðustu þrjár vikurnar fyrir hlaup. Vikunni áður en ég fór út tók ég maraþon á 2:27 í Reykjavík og svo 10 km í Hleðsluhlaupinu. Bæði hlaupin gengu virkilega vel og allar tölur á góðum stað. Ég vildi fara í æfingabúðir og vera úti allan tímann fyrir hlaupið til að sækja meiri rauð blóðkorn í hæðinni og svo til að sleppa við möguleg kvef á Íslandi enda skólar og annað farið af stað. Lukkulega gat Sara og börnin komið með út fyrstu vikuna og auka bónus var að mamma og pabbi komu líka.
Ég segi það næstum því smá sár, en allt gekk upp. Allar æfingar gengu vel, orkan var góð og styrkurinn í toppmálum. Eina sem var ekki að vinna með mér var veðurspáin. Langtímaspáin sýndi mikinn hita í hlaupinu sjálfu og eftir því sem leið nær hlaupinu urðu hlutirnir eiginlega bara ennþá verri.
Hlaupið
Ég ætla ekki að fara allt of mörgum orðum um hlaupið sjálft en það var alveg upplifun að mæta á staðinn á föstudeginum og finna hitann í loftinu. Á laugardeginum tók ég skokk í brautinni og 1km á keppnisákefð. Þar var allt í fínum málum, rétt yfir 150 í púls og 3:38 meðalpace en í síðasta 100km hlaupi var meðalpúlsinn 153.

Markmiðið fyrir hlaupið var að vera algjörlega á mínum forsendum, ekki fara yfir 155 í púls og hlusta á líkamann. Fyrst og fremst einbeita mér að því að kæla mig og svo að taka inn næringu. Þegar við förum af stað er í kringum 13-15 gráður úti og mér líður mjög vel í startinu. Eftir 5km er ég orðinn annar í hlaupinu en það var Japani sem byrjaði mjög hratt og var vel fyrstur. Fílingurinn var góður, púlsinn eins og hann átti að vera og allt á áætlun. Svo eftir um 8 km byrja nokkrir í hópnum að auka og ég held mig bara á sama púls og sama fíling. Fyrstu 20 km ganga ótrúlega vel og ég er alveg handviss um að hitaþjálfunin hafi hjálpað mér mikið þarna. Alveg upp í 40 km líður mér alveg eins og í hinum 100 km hlaupunum, betur ef eitthvað er, en svo kemur stökk í hitann og sólin komin upp í hæstu hæðir þannig lítinn skugga að sjá. Það var í rauninni alveg ótrúleg upplifun að á 5 km breytist allt hlaupið. Allt í einu sé ég að púlsinn er að lækka, hraðinn lækkar svo beint í kjölfarið en erfiðleikastigið fer úr 6 af 10 og upp í 9 af 10, ég kemst þokkalega vel upp í 50 km og svo bara byrjar að slokkna á mér. Mér líður eins og ég sé í einhverjum endasprett en er bara rétt í kringum 4:00 pace. Svo fer allt í einu hamurinn og nárinn að láta vita af sér, svo kemur stingur í hásinina og hlaupið er komið á mjög skrítinn stað.

Ég reyni að halda aðeins áfram og sé hvort ég muni skána en það gerist ekki og ljóst að ég gæti ekki klárað 45 km í svona ástandi. Ótrúlega svekkjandi niðurstaða og gríðarlegur vanmáttur sem ég upplifði eftir hlaupið. Þótt það væru sjúkrabílar í kring sem væru að pikka upp hlaupara sem hefðu ofhitnað eða fengið sólsting þá voru aðrir sem einhvern veginn gátu hlaupið í þessum aðstæðum. Ég er í rauninni handviss um að ég hefði ekki getað hlaupið 50 km þótt ég hefði fengið að byrja fyrsta kílómeterinn í kringumtímann sem ég hætti í hlaupinu.
Að þurfa að hætta var nógu erfitt en að vita af því hvað maður er búinn að leggja mikið á fólkið í kringum sig tók ennþá meira á. Plús það hvað mér fannst erfitt að lenda í enn einu hlaupinu þar sem ég þarf nánast að hugsa meira um að kæla mig heldur en að hlaupa vegalengdina.
Þótt að dagurinn sjálfur hafi verið erfiður þá var mánudagurinn mjög bærilegur og þriðjudagurinn þegar ég kom heim alveg frábær. Það er erfiðast að horfa á daginn fara á allt annan veg en maður hafði ætlað og vera með þetta svona beint í andlitinu. Dagana eftir á finnur maður meira fyrir því hvað baklandið er gott og sterkt og hvað börn eru góð í að jarðtengja mann aftur. Ég veit ekki alveg hvað verður næsta markmið en ég mun gera allt sem ég get til að velja hlaup þar sem ég þarf ekki að hugsa um að kæla mig ;).


Comments