
Baksíðan
​
â€‹Í þessari aðgengilegu og áhugaverðu bók afreksmannsins Arnars Péturssonar er að finna svör við öllum þessum spurningum – og miklu fleiri. Þetta er sannkölluð biblía hlauparans!
​
Hvort sem þú ert byrjandi, þrautreyndur hlaupari eða vilt bara bæta úthaldið opnar Hlaupabókin þér nýjan heim. Arnar bendir þér á einfaldar leiðir til að tryggja að hlaupin veiti þér ánægju, þú bætir árangur þinn, auk þess að fara vel með líkamann svo hlaupin geti fylgt þér alla ævi.
​
Arnar Pétursson er tífaldur Íslandsmeistari í maraþoni. Hann dregur hér saman þekkingu og aðferðir þrautreyndra afreksþjálfara sem hafa nýst honum sjálfum vel við æfingar og í þjálfun – og þú getur lagað að þínum þörfum. Ómissandi bók fyrir alla hlaupara, byrjendur jafnt sem lengra komna!



