Mótlæti er frábært
- Arnar Pétursson
- Sep 3, 2024
- 3 min read
Það gengur sem betur fer ekki allt upp og við fáum ekki allt sem við viljum. Í íþróttum er það mjög augljóst þar sem liðum og einstaklingum er raðað í sæti. Viðhorfið til mótlætis er hinsvegar eitthvað sem við þurfum að minna okkur reglulega á, enda leggjum við ekki upp í neina ferð með það að markmiði að mistakast, við viljum trúa því að þetta muni ganga upp en vera á sama tíma örlítið meðvituð um að mótlæti sé óhjákvæmilegur partur af ferðalaginu.

Fyrsta mótlætið
Ein algeng upplifun á mótlæti hjá þeim sem eru að byrja í hlaupum tengist því að mæta á æfingu hjá hlaupahóp eða taka þátt í hlaupi. Við erum oft hrædd við að taka þátt í fyrsta hlaupinu, því við höldum að við munum verða síðust. Á sama hátt höldum við að við séum ekki nógu góð til að mæta á æfingu hjá hlaupahóp. Ég man að ég var dauðstressaður að mæta á fyrstu hlaupaæfinguna mína þrátt fyrir að hafa náð þokkalegum árangri áður.
Réttari nálgun er að líta svo á að því hægar sem við hlaupum í fyrsta hlaupinu okkar, því auðveldara verður að bæta tímann í næsta hlaupi og þá verðum við stærstu sigurvegararnir í næsta hlaupi. Því hægar sem við förum í fyrsta hlaupinu, því betra. Þegar kemur að því að mæta á æfingu hjá hlaupahóp, þá get ég fullvissað alla hlaupara um það að hlaupahópar eru einhver besti félagsskapur sem fyrirfinnst og þar er öllum tekið opnum örmum. Það sem er líka frábært er að þar eru hlauparar á öllum getustigum.
Mótlæti er til að sigrast á
Mótlætið mun koma en ef við erum viðbúin því, þá mun okkur aldrei líða eins og það sé að sigra okkur heldur sjáum við það sem tækifæri til að yfirstíga þessa litlu hindrun á veginum í átt að góðum árangri. Þetta á bæði við í hlaupunum og daglega lífinu. Ég myndi ekki segja vona það besta en vera búinn undir það versta. Meira þannig að þegar við búum okkur undir mótlæti þýðir það ekki að við þróum með okkur svartsýni og neikvæðni, heldur erum við að æfa okkur í að vera meðvitaðri um umhverfi og aðstæður. Þegar við verðum meðvitaðri, þá munum við samt sem áður halda áfram að vona það besta og vera bjartsýn, því bjartsýni er eitt sterkasta andlega verkfærið sem við getum beitt. Við bugumst því ekki af mótlæti heldur bregðumst bara við. Mótlætið er andleg áskorun sem við munum komast yfir eins og aðrar áskoranir í lífinu.
Brekkan
Auðvitað viljum við fara í gegnum hlaup og líða vel allan tímann, halda réttum hraða og koma þvílíkt sterk í mark. Raunveruleikinn er hinsvegar í flestum tilvikum að það er erfið brekka á leiðinni eða það kemur tímapunktur þar sem allt virðist vera ómögulegt. Bara með því að hafa plan til að bregðast við brekkunni, eins og að hugsa sterkur, sterkur, sterkur þangað til við komumst upp, þá erum við búin að afgreiða hindrunina eins og hún væri ekki til staðar.
Þetta minnir mig á ansi gott Rolling Stones lag, You can't always get what you want, but if you try sometime, you just might find, what you need. Til að gera ylhýru íslenskunni góð skil þá er þetta í hnotskurn að kenna okkur að vera óhrædd við að reyna og prófa og á leiðinni áttum við okkur á hvað það er sem við þurfum, frekar en bara það sem okkur langar í. Það er gaman að bæta sig en það er snilld að láta ekki mótlætið stoppa okkur.
Comentarios