Hvenær má ég gera meira?
- Arnar Pétursson
- May 20
- 2 min read
Það er ekki alltaf gott veður á Íslandi. Engar stórfréttir þarna en þegar það er gott veður þá er um að gera að nýta það og gera jafnvel aðeins meira. Góðu dagarnir eru oftast stakir og svo kemur rigning daginn eftir, þess vegna hef ég alltaf reynt að ná inn auka kílómetrum á góðu dögunum til að eiga inni fyrir rólegri degi þegar veðrið er ekki að vinna með okkur. Núna í maí komu allt í einu næstum heil vika af ótrúlegu veðri og þá er kannski ekki það besta í heiminum að keyra á alla daga eins og það sé síðasti sólardagur sumarsins. Hérna eru nokkrar pælingar hvernig við getum gert aðeins meira á eins skynsamlegan hátt og mögulegt er.

Hvar er ég í æfingatímabilinu?
Þegar við ætlum að gera aðeins meira en prógrammið segir til um þurfum við að hafa í huga hvar við erum á æfingatímabilinu.
Fyrstu vikurnar
Ef við erum rétt að fara af stað er gott að gera meira með því að bæta við högglausri æfingu. Þetta væri þá í formi hjólatúrs, sunds eða rólegri fjallgöngu þar sem við förum rólega upp og rólega niður, ekkert hlaup.
Gæðaæfingar byrjaðar
Ef við erum tiltöluleg nýbyrjuð að taka gæðaæfingar viljum við frekar gera aðeins meira með því að lengja í niðurskokkinu heldur en að taka meiri gæði eða lengri upphitun. Þetta er vegna þess að mikilvægasti hlutinn er að ná inn gæðunum og eftir gæðin þurfum við að meta hvort við séum ennþá spræk og þá er í lagi að taka allt að 30 mínútur af auka skokki en hafa alltaf möguleikann á að hætta fyrr. Þetta er mun skynsamlegra heldur en að taka til dæmis extra langa upphitun, mæta þá of þreytt í gæðin, beita okkur vitlaust þar og setja þá of mikla þreytu í líkamann og ekki ná að framkvæma æfinguna rétt.

Seinni hluti tímabilsins
Ef við erum búin að æfa í 2-3 mánuði með góðum stöðugleika og það er að styttast í keppnistímabilið er betra að taka lengri upphitun og mögulega að bæta við auka 30-40 mín rólegu skokki síðar um daginn á gæðaæfingadögum. Þetta er vegna þess að núna er líkaminn tilbúinn í meira álag og það getur verið betra að byrja gæðin með langa upphitun í fótunum til að æfa líkamann ennþá betur að höndla álagið sem er í seinni hluta keppnishlaupsins. Að sama skapi erum við tilbúin í meira álag þar sem æfingar hafa núna verið í gangi í nokkra mánuði. Það er líka í lagi að bæta aðeins við niðurskokkið en þá væri best að gera það í formi högglausrar æfingar. Betra er að taka auka skokk seinna um daginn ef við vorum að taka morgunæfingu.

Þetta eru ágætir hlutir til að hafa í huga en svona auka aukning á álagi ætti ekki að vera mikið meira en fimm dagar í röð þannig að ef sumarið heldur áfram að gefa þá er best að halda sig við sitt prógram og ekki stelast í auka kílómetra í góða veðrinu. Að því sögðu eru væntingar mínar til sumarsins ennþá akkúrat 0,4 sem námundast niður í 0 þannig um að gera að nýta sér allar sólarglætur.
Comments