top of page

Æfingabúðir fyrir 100 km

  • Writer: Arnar Pétursson
    Arnar Pétursson
  • 10 hours ago
  • 3 min read

Það byrjaði ekki vel fyrir mig í æfingabúðunum í Monte Gordo í Portúgal. Vikuna áður en ég fór út voru bæði börnin veik og akkúrat þegar ég hélt að ég væri að sleppa laumaðist veikin til mín líka. Sem betur fer var þetta ekki alvarlegt en þýddi að ég þurfti að aðlaga æfingar fyrstu dagana úti.


Fyrstu dagarnir

Markmiðið með æfingabúðunum var að sækja ansi marga kílómetra eða í kringum 32-34 km á dag að meðaltali sem þýðir að yfir tvær vikur myndi ég vera að hlaupa 220-240 kílómetra. Á endanum var mesta magn yfir sjö daga í ferðinni 250 kílómetrar sem er það mesta sem ég hef tekið hingað til.

Fyrstu dagarnir gengu samt ekki áfallalaust fyrir sig því ég var með þetta klassíska kitl í hálsinum og kerfið ekki upp á tíu. Það sem þetta þýddi fyrir mig er að ég fylgdi púls sérstaklega vel og leyfði mér þá bara að hlaupa mun hægar en venjulega. Svo lengi sem ég var ekki verri eftir æfingarnar eða daginn eftir æfinguna þá gat ég haldið þessu gangandi. Sem betur fer varð ég betri með hverjum deginum og á fjórða degi var ég 100% heill. Fyrstu sjö dagan náði ég að hlaupa 230 kílómetra og taka fimm gæðaæfingar en þarna voru tveir tvöfaldir dagar og einn 36 kílómetra túr á 150 í púls sem er í kringum púlsinn sem ég stefni á að halda í 100 kílómetra hlaupinu framan af hlaupi.


Klassískur morgunmatur - vatnsmelónur eru fullkomnar fyrir vatnsbúskapinn
Klassískur morgunmatur - vatnsmelónur eru fullkomnar fyrir vatnsbúskapinn

Gæði og næring

Það var mikið um gæði í þessum æfingabúðum og að taka fimm gæðaæfingar í 230 kílómetra viku tekur gríðarlega mikið úr manni. Þess vegna þarf að vera sérstaklega passasamur að borða nóg og nærast á æfingunum. Mitt helsta verkefni þarna úti var líklega að ná að borða nógu mikið. Eitthvað sem þú verður að líta á sem part af æfingunni en ekki bara aukahlut.

Á löngu æfingunum var ég að vinna með SiS, Precision og Maurten gel. Á hverjum degi tók ég svo 1-2 IQ mix með steinefnum til að halda líkamanum gangandi.
Á löngu æfingunum var ég að vinna með SiS, Precision og Maurten gel. Á hverjum degi tók ég svo 1-2 IQ mix með steinefnum til að halda líkamanum gangandi.

Kolvetni eru líklega númer eitt, tvö og þrjú til að fylla á orkubirgðirnar en ég vildi líka passa að ná inn nógu mikið af próteinum, þá sérstaklega á dögum þar sem gæðaæfingar voru á dagskrá. Þá var alltaf steik í kvöldmatinn til að hjálpa líkamanum að vinna sig til baka.


Það var draumur að ná inn gæðum með Hlyn
Það var draumur að ná inn gæðum með Hlyn

Stóru æfingarnar

Monte Gordo er algjör draumaæfingastaður. Fullt af skemmtilegum stígum, góður völlur og langir flatir malbikskaflar. Svo er ég alltaf hrifinn af því að hlaupa á ströndinni og þarna er endalaus flöt strönd. Líklega besta strönd sem ég hef hlaupið á á ævinni. Það var hins vegar mjög áhugavert að lenda í því að veðrið væri ekki að vinna með manni í svona langan tíma. Ég viðurkenni að ég bjóst ekki við stanslausum vind í tvær vikur og að sjá bara sólina svipað mikið og á íslensku sumri. Hvað um það, æfingarnar urðu að vera teknar.

Já vindurinn blés.
Já vindurinn blés.

Í seinni vikunni var ég með tvær aðalæfingar á dagskrá. Annarsvegar var 40 kílómetra æfing á 153-157 í púls sem gekk gríðarlega vel en þar var meðalhraðinn 3:39 og orkustigið ótrúlega gott allan tímann. Seinni æfingin var 50 kílómetra æfing en ég gerði henni góð skil á instagram á www.instagram.com/arnarpeturs. Þar var vindurinn svo sannarlega ekki að láta sig vanta en eftir á að hyggja var gott að hafa hann því þetta æfði hausinn svakalega mikið. Ég fann að ég vildi hætta eftir 30-32 kílómetra í mótvindinum en það er síðan svo gott að finna að við eigum alltaf meira inni og í lokin upplifði ég mig sterkan og orkustigið hátt. Allt á þessari réttu leið.


Eftir æfingabúðir

Þegar ég er búinn að vera í svona miklu magni í æfingabúðum er nánast undantekningalaust endurheimtarvika sem kemur í kjölfarið. Þá fókusa ég meira á lyftingar, stutta spretti, nudd og almenna endurheimt. Þegar ég kom heim frá Portúgal var ég ótrúlega góður í líkamanum, upplifði mig ekki þreyttan og vildi helst halda áfram að æfa í sama magni. Þarna þarf maður að hafa sig allan við að halda aftur af sér og líta á tímabilið í stærra samhengi. Mögulega gæti ég æft af sama kraft en að öllum líkindum er ég að auka meiðslalíkurnar það mikið að þessi pínulitli mögulegi auka árangur er ekki að borga sig.


Núna sit ég og klára að skrifa um æfingabúðirnar, nýkominn úr nuddi og langar mest að taka gæðaæfingu í kvöld. Það eru hins vegar ennþá fjórir dagar í næstu gæði. Þetta er oft erfitt fyrir hausinn en nauðsynlegt að geta haldið aftur af sér og leyfa þá frekar andlegu orkunni að byggjast upp.


Næsta stóra hlaup hjá mér er því 28. mars í Slóveníu þar sem ég mun hlaupa 100 kílómetra. Markmiðið er að bæta íslandsmetið sem er 6:44 og helst vera með meðalhraðann á bilinu 3:49-3:55, sem væri tími milli 6:22-6:30.

 
 
 

Comments


bottom of page